21.10.2007 | 21:10
Ísland um jólin
Já ég fékk það í gegn að vera á Íslandi bæði um jól og áramót ekkert frek er það nokkuð?
Ég hlakka ótrúlega mikið til að koma heim, alltof langt síðan síðast. Ég fann það sérstaklega eftir að stelpurnar komu hingað hvað ég sakna vina minni ótrúlega mikið. Þannig að það verður mikið fjör að hitta þær allar aftur.
Ég hlakka líka til að hitta bræður mína, mömmu og pabba og síðast en ekki síst litlu frændur mína. Hef ekki séð þá síðan í febrúar, þegar ég kom heim í stutt stopp. Þá var Arnaldur bara 4 mánaða og nú er hann að verða 1 árs eftir nokkra daga! Það er meira seigja orðið þannig að Matthías neitar að ég sé frænka sín, ef það fær mann ekki til að fá samviskubit þá veit ég ekki hvað! En ég er loksins búin að fá mér vefmyndavél þannig að núna spjalla ég við hann við hvert tækifæri í gegnum tölvuna svo hann gleymi mér nú örugglega ekki.
Athugasemdir
Æ frábært að þú komir heim
Nei þú ert ekki frek, þú bara veist hvað þú vilt og færð það sem þú vilt
Ásta Björk (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 16:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.